Makes you want to feel like a teenager

Take me out tonight

14.05.2008 01:03:16 / lillipig

svart og hvítt

Trallara.

Ég sit núna baksviðs. Við erum í litlum bæ (eða, ég hef ekki hugmynd um stærðina, ég vaknaði bara hérna í morgun (klukkan þrjú)). Bærinn heitir Ann Arbour. Það eru mörg ævintýri sem maður upplifir hérna 'on the road' eins og þeir segja (chuckles).

Eins og sumir vinir mínar vita kannski, þá búum við í rútu. Þetta er mjög fínn night liner sem við erum með. Það er samt því miður engin sturta í honum, og klósettið er heldur ekkert til að hrópa húrra fyrir, já, það er bannað að skeina sér. Bara hugsað fyrir piss. Ekki mjög konulegt klósett. Við Anna erum búnar að gera mjög mikið grín að þessu, erum með sérstakan 'shake your booty' dans, til að útskýra aðfarir okkar á klósettinu. Ég verð samt að viðurkenna að ég er ekkert búin að nota þetta klósett. Ég og bensínstöðvar, best buds. Já. Nóg um það.

En eins og áður kom fram þá er ekki sturta í rútunni. Maður á það til að vera svolítið desperate í sturtu þegar ekki hefur verið boðið upp á neitt nema klósettvaska eða hárugar baksviðssturtur, tvo daga í röð. Ég, Helgi Hrafn og Tina (æðisleg stelpa frá danmörku sem touraði með okkur í Canada) tókum málin í okkar hendur þegar við mættum til Qubec. Hárið orðið ískyggilega greasy og allt ógeðslegt. Við semsagt hoppuðum upp í taxa og sögðum "take us to the hilton please". Svo gengum við bara mjög ákveðin inn í sundlaugina/ræktina á staðnum. Þóttumst vera gestir og fórum í sánu. Það var voða lítið annað í stöðunni. Ég ákvað líka að bæta um betur og stal tveimur handklæðum...bara svona til að vera rebel.
Við vorum ekki lítið sátt með okkur eftir þetta.

Í toronto fengum við svo lúxus 24 hæða hótel til að gista á eina nótt. Það var alveg nauðsynlegt. Við checkuðum okkur inn klukkan eitt. Ég hékk inni á herbergi uppi í rúmi í heilan sólarhring alveg úrvinda úr þreytu. Ég fór frekar snemma að sofa um kvöldið og var alveg rotuð. Klukkan hálf níu um morguninn fóru svo eldvarnarbjöllurnar í gang. Rosalegt drama. Við helgi bæði í náttbuxum og á stuttermabol, tróðum okkur á tásunum í strigaskóna og hlupum niður níu hæðir. Þessar brunabjöllur voru alveg á í svona 20 mínútur. Shayne bílstjóri var staddur í herbergi á 24 hæð. Hann er nú almennt frekar rólegur náungi en þegar bjöllurnar voru búnar að vera í gangi í korter ákvað hann að þetta gengi ekki lengur, pakkaði ofan í sína ferðatösku og hljóp niður 24 hæðir. Frekar svekkjandi þegar gaurinn í kallkerfinu sagði "the elevators have been activated and you are now free to return to your rooms". Skemmtilegt.

Birgar (tour manager) var núna að segja að við hefðum 15 mínútur þangað til að við förum á svið. ég nenni ekki að skipta um föt.

Ég hugsa að það sé nótt hjá ykkur. Ég var að tala við gunnhildi. hún ýkt heppin, búin í prófum.

Allavegana. bloggedíblogg


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 18:13:48 / lillipig

Of Montreal

Jah.
Ég er glataður bloggari það er alveg augljóst. En allt í lagi, betra seint en aldrei eins og einhver sagði.

Við erum semsagt búin að rúlla um bandaríkin í tæpar þrjár vikur núna. Það er búið að ganga alveg ágætlega. Tónleikarnir ganga alltaf mjög vel, en sumir staðirnir sem við spilum á eru alveg fáránlegir.

Við túruðum fyrst með stelpu sem heitir Brooke Wagoner. Æðisleg stelpa, hún ferðast með sellóleikara með sér svo ég hafði einhvern til að tala við. Á tónleikunum í Nashwille kom einhver æðislegur hljóðmaður svo og sullaði bjór yfir bogan minn og líka hans Teits. Það fór samt ekki verr en það að eftir að ég var búin að láta laga bogann tvisvar lenti ég á æðislegum glænýjum boga í New York og ég keypti hann bara (fyrir peninga sem ég á ekki einu sinni, mamma og pabbi, hail to them).

Á eftir Brooke ferðuðumst við svo í viku með hljómsveit sem heitir Old Springs Pike. Þau eru alveg ÆÐISLEGT fólk. Tríó, besta show sem ég hef séð. Rosalega skemmtileg tónlist og svo er þetta bara svo yndislegt fólk. Þau MUNU koma til íslands. No matter what. James, James og Heather. Við eyddum miklum tíma með þeim í New York.

Á new york tónleikunum spilaði Nico Muhly með okkur í nokkrum lögum. Hann er algjör snilld sá drengur. Mjög fyndnir tónleikar það. Ég þekkti svona 20 manns í áhorfendahópnum.

Í nótt keyrðum við frá vermont til montreal. Ótrúlega fyndið að fara yfir landamærin hérna. Ég og Mikael bassaleikari þóttumst vera kærustupar af því að hann er með bandarískan ríkisborgararétt en ekki ég. Hann frekra fullorðinslegur, fúlskeggjaður tveggja barna faðir og ég, lítil og ljóshærð. Tíu árum yngri. Við vorum ekki beint sannfærandi og ég var eiginlega í kasti allan tíman. Það var samt ekkert mál að komast yfir. Tók bara svolítið langan tíma. Við komumst svo að því að við þurftum ekkert að vera með neitt leyfi til að spila í kanada. Piff.

Ég veit ekkert hvað ég ætla að gera í sumar. Það er eiginlega helsta áhyggjuefni mitt þessa dagana. Ég get auðvitað verið skynsöm, hætt að hugsa um peninga og æft mig eins og mother f' í allt sumar. Ég verð auðvitað lí´ka frekar mikið í útlöndum. vill enginn ráða svoleiðis manneskju í vinnu. Ég er bara svo sein að hugsa út í þetta. Þetta er einhvernveginn ekki það sem maður spáir í þegar maður vinnur alla daga vikunnar.

Ég sit núna á einhverju kaffihúsi hérna, rosa næs. Ég er búin að skoða allt sem ég get skoðað á netinu og ég held að load inn sé eftir sovna tuttugu mínútur.

Ég er DUGLEG að blogga. Vúppídú.

-Unnur



» 2 hafa sagt sína skoðun

16.02.2008 16:15:29 / lillipig

in átlends

Daginn.

Ég er sem stendur stödd baksviðs á Vega í Kaupmannahöfn. Helgi bróðir er hér einbeittur gegnt mér að líma saman hulstrin á geislandisknum sínum. Sú iðja er búin að einkenna þessa ferð núna því hann er búinn að selja rosalega marga diska og við þurfum alltaf að búa til fleiri jafn óðum. Í gærkvöldi seldist diskurinn upp og við erum þessvegna búin að vera að líma stanlsaust í rútunni á leiðinni frá Arhus til Köben.

Þessi ferð er búin að vera svo frábær. Við spiluðum í Óðinsvéum í fyrradag. Það voru 450 manns og gekk rosalega vel. Mjög gott start á þessu. Þar hitti ég Sofie gömlu vinkonu mína sem ég hafði reyndar aldrei hitt fyrr (internetið, magnaður andskoti). Það var ótrúlega spes en mjög gaman. Þeir tónleikar fengu sex stjörnur í Gaffa sem er aðal blaðið hérna úti.

Það er sko komið fram við okkur eins og algjörar stjörnur (sem Teitur er nú í sjálfu sér hérna úti). Baksviðs er alltaf nóg af nammi og snakki, samlokur til að fæða afríkuríki og fullllllt af bjór. ;)

Í gærkvöldi spiluðum við í Árhúsum og það var uppselt, 850 manns. Ótrúlega gaman! Gekk mjög vel og það var verið að taka þetta upp fyrir einhverja sjónvarpsstöð hérna. Mjög fyndið að hafa þessa gaura á sviðinu allan tíman. Jakob, vinur Teits sem er besti kokkur í skandinavíu (grínlaust, vann verðlaun), bjó til sykurpúða handa öllu crowdinu og við djömmuðum Marshmallows lag. Mjög skemmtilegt. Árni Heimir og Helgi vinur hans komu svo baksviðs og við fórum öll saman í partý hjá vini hans Jakobs. Ég, Helgi, Anna og Teitur löbbuðum svo heim klukkan 5 eða eitthvað þannig að það er frekar mikil þreyta í mannskapnum.  

Í kvöld er það svo Vega. Ég hlakka ógeðslega mikið til. Staðurinn tekur 1500 manns og það er næstum uppselt. Mjög stressandi, eiginlega mikilvægustu tónleikarnir. En svo spennó!!! :)

Ég hlakka til að koma heim á morgun. Við lendum víst klukkan 10 um kvöldið en ekki um morguninn eins og ég hélt.

Hljóðprufan fer að byrja. Teitur var að vakna. Anna er að æfa sig.

:)


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.01.2008 19:27:56 / lillipig

lálá

Hæbbó.

 Jæja núna er þetta loksins komið af stað. Fyrsta æfingin var í dag. Ég vaknaði klukkan 9 og tók Metro (heheh) yfir á næstu stöð þar sem Teitur og Anna kærastan hans biðu í bakaríi. Þaðan fórum við svo yfir í æfingahúsnæðið ásamt Derek trommara. Þetta er svolítið svona sjabbí staður þetta æfingahúsnæði en herbergið sjálft er mjög fínt. 

 Mér tókst að slíta streng á hljóðfærinu og ég er ekki með auka sett með mér þannig að ég þarf að bíða þangað til að búðir opna á mánudaginn með að fá nýjan streng. Rather pathetic. Ég er samt að spila á klarinett í rosalega mörgum lögum og við syngjum líka mjög mikið þannig að ég hef nóg að gera. Mjög óþægilegt að geta ekki æft sig samt.

 Það er semsagt bara mjög fínt hérna. Líney og Þórir eru núna að elda fyrir mig og Helga en Helgi liggur steinsofandi við hliðina á mér og slefar...(næstum).

Leiter 


» 3 hafa sagt sína skoðun

14.01.2008 01:17:16 / lillipig

:)

Hævó.

Ég hef ekkert svakalegt til þess að blogga um, en hef samt ákveðið að hefjast handa við að skrifa svona dagbók hérna aftur bara til þess að vinirnir geti aðeins fylgst með á meðan ég verð í útlöndum og til þess að ég geti sjálf aðeins rifjað upp hvað var í gangi, hver handskrifar nowadays?Ég var einmitt að fá að vita að það verður oftast þráðlaust internet þar sem við verðum þannig að ég get þá aðeins látið vita af mér og vonandi hent inn myndum og svoleiðis.

Já, annars var þetta mjög góð helgi. Ég eyddi föstudagskvöldinu bara í æfingar til 21.30 og fór svo að passa litlu frændsystkin mín, Helgu og Arnþór. Það var bara mjög gaman eins og alltaf. Þau eru í alvöru sérstaklega skemmtileg börn. Arnþór er sko verðandi uppistandari án gríns.

Í gærkvöldi héldu Áskell og Vala svo heljarinnar matarboð, einstaklega skemmtilegt. Góður matur, heitur pottur, tónlist og gott fólk, fullkomin blanda.

Á morgun fara allir aftur í skólann. Ég verð hérna...hangandi. ;) Nei ég segi svona.. þetta er ekkert svo slæmt.

Ég ætla aðeins að setja nokkrar myndir frá jólunum og svoleiðis inn.

Beh


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2007 18:11:56 / lillipig

búddíbúddí

Jáh.

Gærkvöldið var voða fínt. Ég hélt í sund með góðu fólki. Árbæjarlaugin er FLOTT sundlaug. Vá. Síðan var komið við í ísbúð á leiðinni heim þar sem Andri Hrafn bjó til gæðabragðaref með pétur pan sósu.

Í dag fór ég í sellótíma og fékk að vita að ég tek sjötta stig í vor. Það er ágætt. Ekki of knappt. Gæti alveg tekið það í haust en það er bara svo mikið af verkum sem ég þarf að læra utan að, og ég er líka að fara í grunnstig á píanó þannig að, vorið it is.

Síðan var haldið í Tónheyrn þar sem við Fjölnir slógum í gegn....he...he..

Í kvöld ætla ég að vera með lötuveiki og vont veður veiki...æfa mig og hafa það kósí.

Gott blogg eh?

nei.

BLess ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

24.09.2007 07:56:16 / lillipig

another day - another dollar

Nú er klukkan 07:55. Ég er að fara í skólan, á að vera mætt eftir 50 mínútur. :)

Ég fæ að fara á bíl og er sátt með það. Búin að taka mig til voða vel! 

Ég er samt ekki búin að læra neitt um helgina. Á laugardaginn var ég of flögrandi út af þessu matarboði og í gær var ég bara mjög flögrandi, punktur.

Ég er pínu stressuð að mæta í tímana þess vegna. Sérstaklega íslensku :O...o-ó.

Gunnhildur er að fara í bóklega bílprófið á eftir. Hún nær pottó. Hún er svo dugleg.

 Jæja....dansidansi


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.09.2007 15:53:26 / lillipig

Fyrir Önnu Þyrí

Hæhó.

Ég er sviiikari.

Ég er búin að vera svo löt að blogga að það nær engri átt. EN, betra seint en aldrei.
Þetta er so far búin að vera frekar viðburðarík önn. Mjög skemmtileg. Ég minni sjálfa mig svolítið á belju á svelli. Ekki mjög tignarleg en samt geðveikt fyndið að fylgjast með.

Ég er búin að forgangsraða skólanum í þriðja sæti allt of mikið þessa önnina..í fyrsta sæti er félagslífið og í öðru sæti er tónó. Þetta verður samt eiginlega að vera svona. Annars er svo sjúklega leiðinlegt.

Á föstudaginn síðasta hitti ég Rannveigu og Völu, við fórum til Andra í ísbúðina og fengum okkur ís. Mjög gott það!

Í gær hélt ég svo matarboð handa nokkrum vinum mínum. Það var æðislega gaman. Mikið sungið og hlegið og góður matur þó ég segi sjálf frá :)

Síðan var haldið út í bæ til Óla að spjalla. Ég og Rannveig enduðum svo á því að fá okkur söbbara á N1 og bíða í tvö ár eftir fullum Taxabílstjóra. hahah ..mjög gott..mjöööög gott.

 Takk bara fyrir helgina alllir saman.

Ég sakna þín Anna mín.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

31.07.2007 14:51:24 / lillipig

extremely satisfied

Ég er ad fara til íslands á eftir.

Mig langar ekki beint heim, thó ég hlakki til ad hitta alla heima.

Ég er samt svo himinlifandi hamingjusöm eftir thessa ferd. Ég er búin ad kynnast fólki sem skiptir mig rosalega miklu máli. Ég er búin ad laera svo ótrúlega margt og... vá. 

Ég sé ykkur á morgun.  

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 21:17:48 / lillipig

H&M Bitch

Sjitt sko. Ég er verslunar óð..ég verð að fara að slaka á í þessum efnum.

 ...en þetta er bara svo GAMAN :D

 Ferðin er so far búin að vera snilld. Ég og Helgi erum rosalega dugleg að belgja okkur út með Sushi en hann er í þessum töluðum orðum að búa til tónlist úr glösum...mjög gaman :D

Í gærkvöldi eldaði Helgi dýrindis máltíð fyrir okkur Marlene, frábært lasagna. Svo var haldið í opnunarpartý Impultanz sem er eitt af stærstu dansfestivölum í evrópu og Marlene vinnur við fjölmiðlamálin þar á bæ. Þar var mjög gaman..vitanlega mikið dansað og fullt af flamingo flaming folum (hver öðrum...heitari.....svo ég segi nú ekki meira...hóst..). Nú, fyrst þótti manni óþægilegt að dansa þarna af því að mjaðmahreyfingarnar voru svo svakalegar hjá öllum og fólk auðvitað flest allt útlært í dansi...en síðan slepptum við bara af okkur beislinu og höfðum gaman langt fram á nótt :D

 Jáh..ég hef fátt fleira að segja.

Nú er ég að spá í að fara að skrifa nokkur póstkort...

 Bless litlu kútar...


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 12:33:35 / lillipig

hellohello

Ég er í austurríki.

Mætti á svæðið eldsnemma í gærmorgun (6:10 á austurrískum tíma)...eftir langt næturflug. Svaf því ekkert mjög mikið þá nótt en það var allt í lagi.

Helgi kom og sótti mig á flugvöllinn og við fórum og fengum okkur kaffi, fórum svo í bakarí og fallarí. Svo eftir að ég var búin að fara í sturtu og þannig fór ég beina leið að versla (frekar strangur verslunarkúr..haha). Ég keypti mér TRYLLTA svarta og hvíta van's flipflops...ohh þeir eru svo fínir. Svo var haldið í H&M og spreðað aðeins. Mjög gaman.

Núnú, svo nefndi Marlene að CocoRosie væru að spila í vín um kvöldið en að það væri uppselt. Helgi frægi hringdi þá bara nokkur símtöl og reddaði okkur á gestalistan. Hahha við erum svo mikilvæg :lol:

Ég og Helgi fórum út að borða á sushi stað og sprengdum okkur af sushi. Geeeðveikt! nú svo var bara spanað beina leið heim til að skipta um föt og svo á CocoRosie. Fyrst var heví góður Beatboxari, Taz að nafni..maður var orðlaus hann var svo góður. Hann kom upp geðveikri stemningu og var síðan með CocoRosie allt kvöldið (þ.e...BARA hann, ekkert slagverk, sem er sweet).

CocoRosie voru svo GEEEÐVEIKAR. Algjörar dúllur og bara best þegar þær tóku By your side og Beautiful Boyz. Damn þetta var gott kvöld. Mér fannst samt alveg merkilegt að ég hefði enst alla tónleikana en undir lokin var ég alveg búin á því og rotaðist líka um leið og við komum heim..

Í dag erum við helgi aðeins búin að vera að taka upp selló og svoleiðis. Ég er síðan bara að fara aftur í búðir... þetta gæti endað illa. hehehe

 en..ég ætla að reyna að vera dugleg að blogga eitthvað á meðan ég er hérna. Sjáum til hvernig það gengur. :)


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 18:55:06 / lillipig

Sátt við Sumarið

Ég minnist þess að hafa bloggað færslu sem innihélt frumsamið ljóð í lok apríl sl. Það hljóðaði svo;

Prófin eru alveg að koma
og þá er sumarið líka alveg að koma
sem þýðir ekkert nema freknur
og hamingja

Þessar síðustu þrjár línur eru sko sannleikurinn og ekkert nema sannleikurinn. Þetta sumar er búið að vera svo æðislegt að ég á ekki orð til að lýsa því. Ég er í FRÁBÆRRI vinnu sem felur það í sér að gera fínt í nokkrum beðum á austurvelli og þar í kring, borða ís og tana. Flestir eyða hléunum sínum í þetta. Grínlaust. Frábært fólk. Ég er rooosalega sátt við að þekkja þau öll saman. Veðrið er snilld og ég er sko meira en bara með freknur, ég hef aldrei verið jafn brún. Tuttugu stig og sól á hverjum degi og ég er bara á tásunum og hlýrabol niðri í bæ.

Þó svo að mínar nánustu vinkonur séu ekki búnar að vera við hérna á nesinu og það sé frekar súrt er ég búin að hafa Axel og Gunnsu og fleiri til að skemmta mér með.

Úff sko.

 Um helgina fór ég á ættarmót í föðurætt fyrir norðan rétt hjá Húsavík. Það var auðvitað alveg rosa gaman. Svo er ég bara á leiðinni út til austurríkis eftir viku.

Ég mæli með því að þið horfið á kastljósið í kvöld. Kjepps í sjónvarpinu ;)

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.06.2007 19:03:54 / lillipig

útilega

Hæhæ. Ég fór í útilegu um helgina með Axel og Grétu á Laugarvatn. Rannveig og Hildur vinkona hennar voru að halda afmælið sitt.

 Við lögðum af stað úr bænum á föstudaginn klukkan svona 7 eftir smá dútl. Við vorum föst í nokkrum umferðateppum á leiðinni en við vorum komin á Laugarvatn um 9 leitið. Við byrjuðum á því að finna stað til þess að tjala á af því að tjaldstæðið er bannað yngri en 30 ára (hahahahah). Við tjölduðum í einhverjum Jónasarlundi... komumst svo að því síðar að það er ekki vel liðið og lentum í smá veseni út af því. Allavega..´

 kvöldið byrjaði svona frekar hægt hjá mér og Axel og við enduðum á því að rúnta um sveitina frá 10-11 og fórum svo bara beint út í tjald þar sem gleðin hófst.

Gréta var svei mér þá hress
og axel sömuleiðis
ég var einnig í góðu geimi en búin að smitast af hnakkaskap hinna gestanna...það var þó bara tímabundið..haha
rannveig var ekkert nema hamingjan
en þá var líka hressa fólkið svona u.þ.b. upp talið...
við axel tókum þó ekki alvarlega á því..vorum farin að sofa um eitt leitið (þvílík hjón...þvílík hneysa!). Ég vaknaði um tuttugu mínútur í fjögur við það að það var verið að berja tjaldið okkar að utan og einhverjir frekar leim gæjar með bílnúmerið "fíkniefni" voru farnir að vera með einhvern derring á tjaldsvæðinu okkar, keyrðu víst niður eitthvað tjald og voru bara mættir til að fara í slag..sem var leim.
Það var hringt á lögguna og hefði verið fínt að fá hana til að reka þetta pakk í burtu en...neinei...löggan beilaði þó það hefði verið hringt 6 sinnum í selfosslögguna...frekar leim. Við xeli náðum samt að sofa þetta nokkurnveginn af okkur. Þegar við vöknuðum um morguninn var svo allt í rúst en við gréta tókum það mesta til :)
Svo fórum við og fengum okkur sveitt að borða og keyrðum svo í bæinn með viðkomu í Eden í Hveragerði.
nenniggimeir

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 17:55:58 / lillipig

þreytt en sæl

Hæ hó.

Nú er ég búin að vera að vinna í smá tíma og þetta er bara fínasta vinna :) góð stemning og svona skemmtilegheit.

Í rauninni er bara einn stór galli og það er að ég er ALLTAF þreytt utan vinnu....alltaf bara eins og undin tuska og um helgarnar er ég algjör aumingi. Fer alltaf bara að sofa klukkan 12 og á laugardaginn síðasta ætlaði ég að fara eitthvað aðeins að taka á því, ef svo má að orði komast...en ég varð bara eins og ég væri að verða veik af þreytu klukkan svona 2 og fór bara heim!! Frekar lásí bisness.

 Og allir sem ég er búin að vera að beila á ...sýnið skilning...ég sef meira en ungabarn þessa dagana. :!::$

en annars var helgin að sjálfsögðu bara tekin í rólegheitunum. Á föstudaginn hittum við axel Védísi og Matta og við fórum öll saman í göngutúr í öskjuhlíðinni..(hljómar frekar dópistalega...). Svo fórum við og keyptum okkur ís í hagamelsísbúðinni og fórum út á nes í fótabað í þartilgerðri laug :D mjög næs.

Á laugardaginn áttum við axe pantað borð á ítlalíu í boði mamms og pabbs..(afmælisgjöf til axels). Síðan fórum við á iðu þar sem við stoppuðum í tvo tíma. Svo var haldið í smá sötr-samkomu. Takk fyrir okkur sötr-samkomu-haldari Snorri;) Það var mjög fínt en ég var auðvitað eins og undin tuska alltaf hreint...svei svei svei. Ég og axel fórum heim svona um tvö hálf þrjú og fórum bara að sofa. Ég er nú meiri haugurinn.

Í gær grilluðum við, ég, Axel og Jói þröngbuxaði. Jói fékk sér risastórar pólskar pulsur. Gæði á honum alveg hreint. Svo klukkan svona tíu komu Matti og Védís og við spjölluðum og spiluðum músík til miðnættis.

 Ég hef ekki bloggað svona týpísku bloggi mjög lengi. Skemmtilegt.

Allvega...ég verð að vinna á austurvelli á morgun...ég er í drullugalla og er soldið ljót þannig að ...endilega kíkiði :D


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 16:38:21 / lillipig

jájámm

Góðan og blessaðan.

 Ég er frekar dugleg gella á kjenntinum skal ég ykkur segja.

Ég nefninilega labbaði úr vinnunni. Ekki nóg með að vera niðri í bæ í drullu skítugum galla lítandi út eins og leikskólabarn, nei, ég ákvað að labba heim. Ég mætti auðvitað öllum sem hægt var að mæta og Helga Svala þekkti mig ekki einu sinni. Hljólaði framhjá í fússi og hefur líklegast velt því fyrir sér hvort einhver hafi gleymt að loka hliðinu á grænuborg.

Eníhú....ég veit ekki alveg hvernig þessi helgi verður hjá mér. Ég ætla allavega bara að vera í eintómum kósílegheitum í kvöld. :) mjööög þreytt

 

ég heyri að einhverrstaðar er verið að spila Sigur Rós. ÆtlA að elta hljóðið♥


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Tískugúrúið