Makes you want to feel like a teenager

Take me out tonight

13.07.2007 21:17:48 / lillipig

H&M Bitch

Sjitt sko. Ég er verslunar óð..ég verð að fara að slaka á í þessum efnum.

 ...en þetta er bara svo GAMAN :D

 Ferðin er so far búin að vera snilld. Ég og Helgi erum rosalega dugleg að belgja okkur út með Sushi en hann er í þessum töluðum orðum að búa til tónlist úr glösum...mjög gaman :D

Í gærkvöldi eldaði Helgi dýrindis máltíð fyrir okkur Marlene, frábært lasagna. Svo var haldið í opnunarpartý Impultanz sem er eitt af stærstu dansfestivölum í evrópu og Marlene vinnur við fjölmiðlamálin þar á bæ. Þar var mjög gaman..vitanlega mikið dansað og fullt af flamingo flaming folum (hver öðrum...heitari.....svo ég segi nú ekki meira...hóst..). Nú, fyrst þótti manni óþægilegt að dansa þarna af því að mjaðmahreyfingarnar voru svo svakalegar hjá öllum og fólk auðvitað flest allt útlært í dansi...en síðan slepptum við bara af okkur beislinu og höfðum gaman langt fram á nótt :D

 Jáh..ég hef fátt fleira að segja.

Nú er ég að spá í að fara að skrifa nokkur póstkort...

 Bless litlu kútar...

Rannveig skrifaði
hahaha.. ég hefði nú verið til í að sjá þetta!:P jæja sakna þín lillipig!
Rannveig skrifaði
Mér finnst þú hræðinleg að vera alltaf að hitta fólk sem ég dái til dauða og ég sé það aldrei!!! ull.. hver var annars hinn gaurinn?:P farðu inná realmadrid síðuna og tjékkaðu.. er geðveikt spennt:P
unnur skrifaði
eg veit thad ekki!!! : ( eg sa ekki framan i hann....!! thad er allt trodid herna af spaenskum fjolmidlaperrum sem flauta a okkur saklausu strengjabörnin haegri vinstri....
vala skrifaði
haaj! Ég hef ekkert heyrt í þér :(
Rannveig skrifaði
hahaha! jæja.. ok:P en Nistelroy er kúl!:P hehehe..

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Tískugúrúið