Hæ allir!
Ég er komin heim frá austurríki og eins og ég lofaði verðið þið
víst að fá blogg
Allsherjar risa blogg um austurríki, mér er
drullu sama þó þið nennið ekki að lesa allt 
Ég vaknaði svona líka hress klukkan 4:30 á sunnudeginum 6.
nóvember eftir að hafa sofið mjööög stutt. Ég og Anna Þóra vorum
svo heppnar að vera að fljúga með tíu mínútna millibili svo við
gátum verið saman á flugvellinum. Ýkt kúl. Ég keypti mér myndavél á
flugvellinum. Mjög flott, canon.
Jæja. Flugvélin mín var yfirfull af miðaldra dönum. Eins og allir
vita elska ég miðaldra dani. Nei ókei. Flugið til danmerkur er svo
helvíti langt þegar maður er einn. Eeeen svona verður maður bara að
fórna sér. Ég þurfti ekkert að tjekka inn aftur, gat strax bara
farir að hliðinu sem var til austurríkis. Ég fór samt smá að verlsa
á castrup. Keypti mér hatt og cosmogirl! Hell yeah.
Svo var ég bara allt í einu komin til austurríkis. Marlene og
Cristoph bróðir hennar sóttu mig á flugvöllinn. Voooða gaman.
Þegar við komum heim á stumpergasse opnaði ég sellókassann spennt
að hitta Sebastian Leopold Lennon. Greyið karlinn...Stóllinn
brotinn. 


OJ hvað ég var reið út í flugfélagið. Ég sé þá
alveg fyrir mér í körfubolta með sellóið mitt. Eníhú. Það þýðir
samt ekkert að væla yfir þessu. Ég mátti bara gjöra svo vel og fara
með sellóið mitt í viðgerð.
Á mánudeginum eftir að ég kom heim fór Helgi til London til að
spila með Sigur Rós. Fyrstu fjóra dagana var semsagt mjög rólegt
hjá mér. Ég fór með sellóið mitt í viðgerð og svoleiðis og var
annars bara að versla og svona 
Það sem við Marlene gerðum var m.a.
-Tískusýning
-sushi
-ítalskur ís
-mjög einhverfar myndir inná klósetti á sushibar 
-Kaffihúúús
-mikil og öflug dagbókarskrif
Já við marlene skemmtum okkur svona líka vel saman.
Svo bara á fimmtudeginum fórum við og sóttum Helga felga. Hann var
mjög sáttur og hafði skemmt sér kooonunglega í London amongst the
celebrities 
Ég lenti í helvíti skemmtilegum atvikum þarna úti. Þegar ég var að
fara í fyrsta selló tíman minn tók ég bara taxa. Ég sagði með
mjög fullkomnum þýsk/austurrískum hreim “Ölzeltgasse 4 bitte”.
Eftir að hafa keyrt í svona u.þ.b 45 mínútur þá fundum við
Ölzeltgasse en ekkert númer fjögur svo ég hringdi í Dorli
sellókennara. Komumst þá að því að það eru tvær götur sem heita
Ölzeltgasse í austurríki og við vorum alveg í hinum enda bæjarins
(Vín er STÓR borg...guð minn góður) þannig að við þurftum að keyra
í svona klukkutíma til baka að Ölzeltgasse þar sem ég var að fara.
Ansi dýr taxatúr það.
Svo lenti ég líka einu sinni í þeirri skemmtilegu uppákomu að
læsast úti. Helgi vakti mig einhvertíman klukkan 15:00 og bað mig
um að fara og taka á móti einhverjum pakka fyrir sig. Ég hljóp bara
niður með veskið mitt á náttbuxum og flíspeysu (já, ekki einu sinni
í brjóstahaldara..
mér var skítsama um þennan sendil). Svo tók ég
bara á móti pakkanum og labbaði upp að íbúð hjá Helga. Fattaði
þá...mér til mikillar kátínu, að ég var ekki með lykil. Þá var ég
semsagt, klukkan 3, ekki búin að borða morgunmat, geðveikt svöng og
bara með veski, ekki einu sinni gemsa. Eftir að hafa setið fyrir
utan íbúðina hans helga í svona þrjú korter fór ég, ferskleikinn
uppmálaður, á mcdonalds (og til að minna ykkur á það þá var ég á
náttfötum, skærbleikum joe boxer náttbuxum..), það er mikið af
furðulegu fólki í austurríki skal ég segja ykkur, en það var samt
sem áður GLÁPT. Þá var ég semsagt læst ALVEG úti....(ég varð að
borða ..úff). Ég fór síðan á einhvern bar sem er á móti húsinu hans
helga og bað um að fá að hringja, þau bentu mér á einhverja call
shop þar sem maður getur hringt og komst þá að því að Alexander
nágranni er með lykil. Þá var ég búin að vera læst úti í þrjá tíma.
Góður dagur 
Ég fór á fjóra Helga tónleika í þessari ferð. Fyrst
alveg sóló. Það var geðveikt skemmtilegt
Mjög rólegir tónleikar
en fólk var alveg að digga þetta.
Svo voru einir tónleikar með Helga Jónsson bandinu á Porgy &
Bess. Það var mjööög gaman en Porgy & Bess er jazz bar þannig
að fólk var kannski ekki alveg að búast við þesskonar tónlist eins
og Helgi spilaði.
Næst var farið til graz. Já ferðin til graz var nú ansi
skemmtileg. Morguninn sem við áttum að fara til graz ákváðum við
helgi að ég færi bara í sellótíma og svo færum við samferða með
lest til graz. Eftir tíman þá hringdi Helgi í mig og sagði mér að
hann hefði ruglast á tímum og væri orðinn allt of seinn á beefólk
fund sem hann átti að mæta á. Mjög hressandi
Ég tók semsagt bara
næstu lest á eftir honum en það var ágætt. Ég samt kann ekkert
fullkomlega á lestarkerfi (og ekki lestarstöðvar heldur, ég var að
koma inn á slíka í fjórða skipti á ævinni) og lendi í því
skemmtilega atviki að dúfa flýgur á mig, inni á lestarstöðinni. Mér
hefur bara aldrei á ævinni brugðið svona mikið. Ég var sko að
hlaupa til að fá mér eitthvað að borða og hleyp svona nokkurnveginn
á eina dúfu sem var bara þarna á gólfinu. Hún flýgur upp og á mig
að framan. Ég held það svei mér þá að tíminn á lestarstöðinni hafi
stöðvast. Ég öskraði alveg frekar hátt og fólk já...furðaði sig á
þessu athæfi mínu. Jæja, ég komst samt heilu og höldnu til graz á
endanum
Þá voru tónleikar með helga á PBC sem er svona
rokktónleikahús í Graz. Það var GEÐVEIKT. Ég, Anna og Chris vorum
þarna í svaaakalegri stemningu og fólk var gjörsamlega að fýla sig
í botn! Þetta var rosalegt
ég var líka alveg eftir mig eftir
þessa tónleika. Talaði bara við Georg Hartwig um ýmis málefni.
Alveg þarfa þing þessi gaur (sem og allir þarna úti bara...svo
mikil æði)
Daginn eftir þessa tónleika keyrðum við í smábæ í austurríki (rétt
hjá ítalíu) sem heitir Villach. Þar var komið fram við okkur eins
og algjörar stjörnur. Við gistum á geðveikt flottu hóteli, ég var í
king size herbergi og Marlene og Helgi í svítu
Of kúl. Við
prímadonnurnar, ég, ingrid og marlene fórum bara að versla og svo
tókum við okkur til. Þetta voru tónleikar sem voru haldnir af
krökkum bara á mínum aldri og þetta voru bara bestu tónleikarnir
hingað til. Brjáluð stemning og Helgi átti virkilega aðdáendur
þarna
Alveg öskrandi stelpur og læti
Geðveikt skemmtileg.
Eftir það fórum við á einhvern reggae bar sem heitir Mystic Roots. Fullt af
Woodstockenboi liði þarna. Svo kom löggan og rak alla út af því að
klukkan var orðin 2 

mjög skrítið. Þá fórum við bara á næsta
bar, man ekkert hvað hann heitir. Og skemmtum okkur konunglega fram
á morgun.
Tjááá hvað fleira... helgi átti afmæli og þá tróðum við marlene 26
kertum á köku...og helltum svona lítra af kertavaxi yfir hana í
leiðinni. Mjög sætt. Kakan var samt borðuð. Ég hitti auðvitað
billjón yndislegar manneskjur sem mig langar að klóna og taka með
mér til íslands bara til að gera ísland að þolanlegum stað. En það
er víst ekki hægt í bili.
Ég nenni ekki að skrifa meira núna...
Ciao!!!